Klassískt Olíunudd
60 mín 13.000 kr
Taílenskt vöðvanudd (með olíu), þar sem leitast er við að mýkja
stífa vöðva og vöðvafestur, draga úr spennu og þreytuverkjum,
örva blóðrás og auka almenna vellíðan.
Ýmist er unnið með heilnudd yfir allan líkamann og jafnvel tekin
fyrir áherslusvæði sem þurfa sérstaka athygli, eða partanudd þar
sem eingöngu er tekinn ákveðinn líkamspartur t.d. bak og axlir.
Djúpvöðva Olíunudd
60 mín 15.000 kr
Taílenskt djúpvöðvanudd (með olíu), þar sem unnið er markvisst
með dýpri lög vöðva og bandvefs. Leitast er við að leysa upp
langvarandi spennu, losa um stíflur í bandvef og bæta
hreyfanleika.
Þetta nudd hentar sérstaklega vel fyrir þá sem glíma við
langvarandi verki, stirðleika eða álagsmeiðsli, og er unnið út
frá þörfum hvers og eins, oft með sérstaka áherslu á vandasvæði
eins og bak, axlir eða mjaðmasvæði.