Nuddhofið

Sudaphon & Suphansa

Þjónustur

Klassískt Olíunudd

60 mín 13.000 kr

Taílenskt vöðvanudd (með olíu), þar sem leitast er við að mýkja stífa vöðva og vöðvafestur, draga úr spennu og þreytuverkjum, örva blóðrás og auka almenna vellíðan.

Ýmist er unnið með heilnudd yfir allan líkamann og jafnvel tekin fyrir áherslusvæði sem þurfa sérstaka athygli, eða partanudd þar sem eingöngu er tekinn ákveðinn líkamspartur t.d. bak og axlir.


Djúpvöðva Olíunudd

60 mín 15.000 kr

Taílenskt djúpvöðvanudd (með olíu), þar sem unnið er markvisst með dýpri lög vöðva og bandvefs. Leitast er við að leysa upp langvarandi spennu, losa um stíflur í bandvef og bæta hreyfanleika.

Þessi nuddmeðferð hentar sérstaklega vel fyrir þá sem glíma við langvarandi verki, stirðleika eða álagsmeiðsli, og er unnið út frá þörfum hvers og eins, oft með sérstaka áherslu á vandasvæði eins og bak, axlir eða mjaðmasvæði.

Þjónustuskilmálar

Greiðsluleiðir

Reiðufé
Þú getur greitt með peningum (ISK, USD, EUR eða GBP).

Debetkort / Kreditkort
Nuddstofan tekur á móti kortum. Þó ekki AMEX, Discover og Diners Club.

Banka Millifærslur
Nafn: Nudd og Leiðsögn ehf.
Kennitala:
Reikningur:

Gjafakort
Þú getur greitt með gjafakorti frá Nuddhofinu.

Nuddarar

Sudaphon Khongthuean

Sudaphon

Eigandi og stofnandi Nuddhofsins. Menntuð í taílensku nuddi frá Wat Pho Salaya, Bangkok.

Suphansa Khongthuean

Suphansa

Hefur verið hjá okkur síðan í mars 2023. Menntuð í taílensku nuddi frá Wat Pho Salaya, Bangkok.

Jantakarn Monnarai

Jantakarn

Kom til okkar um miðjan desember 2025. Hefur starfað sem nuddkennari síðustu 18 ár í Wat Pho.

Nuddstofan

Staðsetning

Suðurbæjarlaug
Hringbraut 77, 220 Hafnarfjörður


Aðstaða

Við erum með tvö nuddherbergi í Suðurbæjarlaug. Nuddþegar hafa frían aðgang að búningsaðstöðu, sturtu, gufu, sundlaug og heitum pottum samhliða nuddheimsókn sinni.


Opnunartímar

Mánudagur08:00 - 20:15
Þriðjudagur08:00 - 20:15
Miðvikudagur08:00 - 20:15
Fimmtudagur08:00 - 20:15
Föstudagur08:00 - 19:00
Laugardagur10:30 - 16:30
Sunnudagur10:30 - 16:30

Opnunartími getur breyst. Sjá lausa tíma í Noona Dagatali .