Þjónustuskilmálar
Framkoma
Nuddmeðferðir eru á engan hátt kynferðislegs eðlis.
Kynferðisleg áreitni af hálfu nuddþega eða nuddara, hvort sem er um að ræða athafnir eða orð, eru ekki liðin og mun leiða til þess að nuddmeðferðinni er tafarlaust slitið. Nuddmeðferð sem er slitin vegna óviðeigandi hegðunar nuddþega skal greiðast að fullu og nuddþegi verður settur í endukomubann. Alvarleg kynferðisleg áreitni eða árás getur endað með kæru til lögreglu.
Heilsufar og ábyrgð
Nuddmeðferð hefur margvísleg jákvæð áhrif á heilsu. Hún er slakandi, minnkar streitu, verkjastillandi, eykur hreyfigetu og blóðflæði.
Nuddarar eru ekki læknar og hafa því ekki heimild til að sjúkdómsgreina fólk. Nuddmeðferð getur aldrei komið í staðinn fyrir læknismeðferð en getur verið notuð samhliða læknismeðferð.
Það er mikilvægt að nuddþegi upplýsi nuddarann um sjúkdóma eða mein svo að nuddarinn geti tekið tillit til þess í meðferð sinni.
Nuddþegi þiggur nuddmeðferð á eigin ábyrgð og nuddarinn ber ekki ábyrgð á neinum fylgikvillum sem kunna að vera vegna heilsufars nuddþega.
Hreinlæti
Nuddmeðferð felur í sér snertingu og notaðar eru olíur og krem í meðferðum.
Hreinlæti er mikilvægt bæði fyrir nuddarann og nuddþegann og því er mikilvægt að nuddþegi komi í meðferðina með hreinan líkama.
Hreinlæti virkar á báða bóga og skal nuddari gæta hreinlætis og snyrtimennsku. Bæði nuddari og nuddþegi geta tekið ákvörðun um að aflýsa nuddmeðferð sé persónulegt hreinlæti ekki ásættanlegt.
Ef nuddþegi þarf að fara í sturtu við komu telst sá tími hluti af bókuðum meðferðartíma.
Áfengi og eiturlyf
Nuddmeðferð skal fara fram án áhrifa áfengis eða annarra vímuefna.
Bæði nuddari og nuddþegi skulu halda sig frá áfengi a.m.k. 12 tímum fyrir nuddmeðferð.
Lausamunir
Engin ábyrgð er tekin á lausamunum nuddþega, á meðan á dvöl stendur.
Trúnaður
Þetta er fagleg meðferðarstofa sem fylgir ströngum siðareglum. Trúnaður við nuddþega er viðhafður, nema ef um er að ræða athafnir og hegðun sem brjóta í bága við lög.
Klæðnaður
Nuddþegi skal koma inn í nuddherbergi með einkasvæði hulin, til dæmis fullklæddur, í nærfötum, vafinn handklæði eða í slopp.
Nuddþegi ákveður sjálft hvor eigi að nota nærföt eða ekki í meðferð.
Nuddþega er ávallt pakkað inn og aðeins það svæði sem unnið er með er óhulið.
Meðferð og áherslur
Stök nuddmeðferð er í flestum tilfellum eftir fyrirfram ákveðnu nuddkerfi, nema að nuddþegi óski eftir ákveðnum áherslum í nuddmeðferðinni (td. bak, höfuð, fætur o.s.frv.).
Ef nuddþeginn mætir reglulega í nuddmeðferð er hann hvattur til að vinna og deila markmiðum sínum með nuddaranum.
Meðgöngunudd
Því miður getum við ekki boðið upp á meðgöngunudd. Við mælum með að leita til aðila sem sérhæfa sig í meðgöngunuddi og hafa til þess viðeigandi aðstöðu, búnað og sérþekkingu.
Börn og fylgd
Nuddþegar 18 ára og yngri skulu koma í fylgd með fullorðnum og verður foreldri eða forráðamaður að gefa samþykki sitt fyrir nuddmeðferðinni.
Nuddþegar mega óska eftir að hafa 3ja aðila hjá sér í nuddmeðferð, sé þess óskað. Skal sá aðili þá hlíta reglum um hegðun og samskipti.